Stjörnumerki!
Hrútur (20. mars - 20.
apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti,
góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra
þrífa upp skítinn.Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa
við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert
kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur
þú ert.
Naut (20. apríl - 21.
maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu
staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina
sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi
efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína
hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20.
júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf
á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað
ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að
gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel
gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23.
júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi
og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því
að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en
síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer
allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona
dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23.
ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin
málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða
öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og
trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert
latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23.
september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í
heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir
aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist
vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en
stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22.
október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur,
en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur
og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en
þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að
hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir
öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21.
nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð
einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og
hundleiðinlegur.Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf
engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða
ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama
lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21.
desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann
ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að
þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki
hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á
einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
Steingeit (21. desember - 20.
janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur
í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og
segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert
snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú
heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19.
febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf
svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað
hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður,
ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í
raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í
háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20.
mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki
hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú
átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem
þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert
til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja
raunveruleikann.
Er eitthvað til í þessu?
Kveðja Vanilla